Um úrskurðarnefnd velferðarmála
Úrskurðarnefnd velferðarmála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd og er hlutverk hennar að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum.
Frá og með 1. september 2026 fer úrskurðarnefnd velferðarmála með mál er varða undanþágur frá banni við beitingu nauðungar og banni við fjarvöktun og tekur bindandi ákvarðanir um hvort veita skuli undanþágu, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 77/2026 um réttindavernd fatlaðs fólks.
Úrskurðarnefndin er sjálfstæð og óháð í störfum sínum en heyrir stjórnskipulega undir félagsmálaráðuneytið.
Úrskurðarnefndin starfar á grundvelli laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.
Starfsemi úrskurðarnefndarinnar skiptist í eftirtalda sex málaflokka: Almannatryggingar, atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, barnavernd, félagsþjónustu og húsnæðismál, fæðingar- og foreldraorlof og greiðsluaðlögun.
Nálgast má leiðbeiningar um hvernig á að kæra ákvörðun með því að smella hér.
Úrskurðarnefndin er til húsa að Katrínartúni 2, 11. hæð, 105 Reykjavík. Hægt er að hafa samband með því að hringja í síma 551-8200 eða senda tölvupóst á postur@urvel.is. Opnunartími afgreiðslu og síma er frá kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00 Þriðjudaga til fimmtudaga. Lokað er á mánudögum og föstudögum.
Ef nauðsynlegt er að koma skilaboðum og/eða athugasemdur til úrskurðarnefndarinnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið: postur@urvel.is og fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og unnt er.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hýsir kærunefnd jafnréttismála. Frekari upplýsingar um kærunefndina er hægt að finna hér.